Færsluflokkur: Bílar og akstur

Gott veður á Ströndum um helgina

Oddný og Guðmundur.Góðu veðri er spáð á Ströndum nú um helgina, sól og hægum vindi. Og það ætti að fara vel um skákmenn í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík, þar sem Minningarmót Páls Gunnarssonar verður haldið.

Meðal meistara sem skráðir eru til leiks eru Helgi Ólafsson, Henrik Danielsen, Arnar Gunnarsson, Björn Þorfinnsson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Mótið er öllum opið, byrjendum jafnt sem meisturum, bændum og borgarbörnum. Enn er hægt að fá gistingu í Norðurfirði, en þar verður einmitt hraðskákmót á sunnudaginn.

Allar upplýsingar er að finna hérna.

Myndin var tekin 17. júní, þegar nýr veitingastaður, Kaffi Norðurfjörður, var vígður með pompi og prakt. Oddný Þórðardóttir, oddviti Árneshrepps, ræðir við Guðmund Þorsteinsson bónda á Finnbogastöðum, sem missti hús sitt og innbú í stórbruna daginn áður.

Guðmundur er einn af betri skákmönnum Árneshrepps, og hefur tekið skaða sínum einsog sönnum skákmanni sæmir: Ekki tjóar að fást um það sem orðið er, heldur þarf að finna besta leikinn í stöðunni -- og tefla svo til sigurs.


Meistararnir mæta í Djúpavík

DjúpavíkAlþjóðlegi meistarinn Arnar Gunnarsson hefur bæst í hóp keppenda á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Þá hafa tveir af okkar efnilegustu skákmönnum skráð sig til leiks, þeir Guðmundur Kjartansson og Ingvar Ásbjörnsson.

Þeir bætast í hóp meistaranna Helga Ólafssonar, Henriks Danielsens, Björns Þorfinnssonar og Stefáns Kristjánssonar. Fleiri stigaháir skákmenn eru að íhuga þátttöku, en vert er að undirstrika að mótið er öllum opið, enda veitt verðlaun fyrir bestan árangur stigalausra skákmanna, barna, Strandamanna og skákmanna með minna en 2200 stig. Það eru allir velkomnir í Djúpavík.

Kjörorð Hróksins og alþjóðaskáksambandsins er einmitt: Við erum ein fjölskylda.

Myndin: Fossinn Eiðrofi fellur fram af tignarlegu hamrabelti fyrir ofan gömlu síldarverksmiðjuna í Djúpavík.


Hægt að fá gistingu í Norðurfirði

Regnbogi í NorðurfirðiEnn er hægt að fá gistingu í Árneshreppi meðan á Minningarmóti Páls Gunnarssonar stendur.

Troðfullt verður í Hótel Djúpavík og skólanum á Finnbogastöðum, en ennþá er laust á tveimur stöðum í Norðurfirði.

Þar er verslunarstaður og höfn Árneshrepps, og 17. júní verður opnað þar kaffihús. Þar verður einmitt hraðskákmót haldið sunnudaginn 22. júní, í kjölfar mótsins í Djúpavík.

Um er að ræða svefnpokapláss eða uppábúin rúm í mjög snyrtilegum húsakynnum á skemmtilegum stað.

Áhugsamir geta snúið sér til Eddu í síma 554 4089 eða Margrétar í síma 451 4003.

Þeir sem ekki hafa tryggt sér bílfar norður ættu að tala sem fyrst við Sigrúnu eða Róbert.

Sigrún Baldvinsdóttir: sigrun.baldvinsdottir@reykjavik.is sími 6987307

Róbert Harðarson: chesslion@hotmail.com

Myndin: Regnbogi í Norðurfirði.


Fegurð á himnum

RosabaugurÁrneshreppur skartar sínu fegursta þessa dagana, einsog þessi mikilfenglegi rosabaugur er til marks um.

Rosabaugurinn gladdi augu fólks í Trékyllisvík, og er með þeim glæsilegri sem sést hafa, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings sem skoðaði myndir af baugnum.

Náttúrufegurð á Ströndum er einstök, jafnt á himni sem á jörðu.


Enginn venjulegur verðlaunabikar

Valgeir BenediktssonTil mikils er að vinna á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Sigurvegarinn fær 100 þúsund krónur og glæsilega skál úr smiðju listamannsins Valgeirs Benediktssonar í Árnesi.

Valgeir hefur á síðustu árum byggt upp Minja- og handverkshúsið Kört í Trékyllisvík, en það er einstaklega skemmtilegt safn um liðna tíð í Árneshreppi. Þar er einnig hægt að kaupa handverk hreppsbúa, allt frá listilega prjónuðum smábarnahosum til smíðisgripa úr rekaviði.

Ferð í Kört er ómissandi fyrir þá sem koma í Árneshrepp.

Á myndinni er Valgeir Benediktsson með skálina góðu.


Blindur grænlenskur piltur á Minningarmóti Páls í Djúpavík

Paulus NapatoqSextán ára gamall grænlenskur piltur, Paulus Napatoq, sem verið hefur blindur fá fæðingu verður meðal keppenda á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík 20. og 21. júní.

Paulus kemur alla leið frá þorpinu Ittoqqortoormiit, en engin byggð er norðar á austurströnd Grænlands. Þangað hafa liðsmenn Hróksins farið síðustu 2 árin, og það var í fyrra sem Paulus lærði mannganginn á undraskömmum tíma. Við það tækifæri var Paulus gerður að heiðursfélaga í Hróknum.

Þegar Hróksmenn voru aftur á ferð í Ittoqqortoormiit um páskana sigraði Paulus á skákmóti, þar sem keppendur voru 70, og sýndi að hann er engum líkur.

Hann fer líka létt með að aka hundasleða og fer allra sinna ferða í þessu litla þorpi, þar sem 700 kílómetrar eru í næstu byggð.

Smellið hér til að lesa meira um ferðir Hróksins í nyrstu byggðum Grænlands.

Myndin: Paulus krýndur sigurvegari á móti Hróksins í Klæðningar nú um páskana.


Síðustu forvöð að skrá sig til leiks

Hótel DjúpavíkMikill áhugi er á Minningarmóti Páls Gunnarsson í Djúpavík: Allt gistirými í Hótel Djúpavík er nú bókað, sömuleiðis allt svefnpokapláss í Finnbogastaðaskóla, en nóg pláss er á tjaldstæðum. Örfá önnur gistirými eru eftir í hreppnum.

Keppendur ættu að skrá sig sem allra fyrst, því búast má við að loka þurfi skráningu á næstu dögum!


Helgi Ólafsson á Minningarmóti Páls Gunnarssonar!

Helgi ÓlafssonÞað er ljóst að hart verður barist í Djúpuvík eftir 2 vikur.

Hinn margfaldi Íslandsmeistari Helgi Ólafsson mætir til leiks á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Þetta eru frábærar fréttir, enda er Helgi einhver skemmtilegasti og sókndjarfasti skákmaður sem Íslendingar hafa eignast.

Helgi (f. 1956) varð þriðji stórmeistari Íslendinga, á eftir Friðrik Ólafssyni og Guðmundi Sigurjónssyni. Hann hefur margoft teflt fyrir Íslands hönd með miklum sóma. Þá er hann skólastjóri Skákskóla Íslands og hefur unnið mikið starf með ungum skákmönnum.

Skákmenn og gestir ættu að skrá sig tafarlaust, því allt gistirými í Árneshreppi er að fyllast.

Allar upplýsingar um mótið: Smelltu hér!

 


Henrik með í Djúpavík, skráið ykkur sem fyrst

Henrik stórmeistariHenrik Danielsen stórmeistari verður með á minningarmótinu um Pál Gunnarsson Djúpavík, en hann hefur farið mikinn í íslensku skáklífi síðustu árin. Henrik er danskrar ættar, en gerðist íslenskur ríkisborgari 2004, svo hann gæti af fullum krafti tekið þátt í "íslenska skákævintýrinu", einsog hann orðaði það.

Henrik leiddi verkefni Þróunarsamvinnustofnunar, Hróksins og Skáksambands Íslands í Namibíu, sem heppnaðist framúrskarandi vel, og hefur margoft verið í sveitum Hróksins að boða fagnaðarerindi skákarinnar á Grænlandi.

Henrik hefur áður teflt í Árneshreppi, á sterku móti sem Hrókurinn hélt 2005.

Fleiri stórmeistarar hafa boðað komu sína á minningarmót Páls Gunnarssonar 20. og 21. júní, svo fylgist með!

Áhugasamir skákmenn á öllum aldri eru hvattir til að skrá sig sem fyrst, svo gisting finnist fyrir alla!

Skráningu annast og upplýsingar veita:

Sigrún Baldvinsdóttir sigrun.baldvinsdottir@reykjavik.is sími 6987307

Róbert Harðarson chesslion@hotmail.com

Hrafn Jökulsson hrafnjokuls@hotmail.com


Stefán Kristjánsson með í Djúpavík

StórmeistariSkákmeistarinn Stefán Kristjánsson hefur boðað komu sína á minningarmót Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Stefán er með 2485 Elo-stig og skortir aðeins 15 stig til að verða útnefndur stórmeistari í skák. Hann tefldi með Hróknum á Íslandsmóti skákfélaga og varð í þrígang Íslandsmeistari með félaginu.

Stefán tefldi, einsog Páll heitinn, á fyrsta alþjóðamótinu í sögu Grænlands, sem fram fór í Qaqortog á Suður-Grænlandi. Þrátt fyrir ungan aldur (Stefán er fæddur 1982) er hann þrautreyndur landsliðsmaður og meðal allra sterkustu skákmanna Íslands.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband