Helgi Ólafsson sigraði með glæsibrag á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík

Helgi og Espen LundHelgi Ólafsson stórmeistari sigraði með glæsibrag á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík nú um helgina. Helgi tapaði ekki skák og hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum.

Björn Þorfinnsson var í öðru sæti með 7 vinninga og í 3.-5. sæti urðu Arnar E. Gunnarsson, Simon Bekker-Jensen og Henrik Danielsen með 6,5 vinning.

Mótið var haldið í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík og var einstaklega skemmtilegt. Keppendur voru 53 og komu úr öllum áttum, börn og byrjendur, stórmeistarar og stórbændur.

Veitt voru verðlaun í fjölmörgum flokkum og varð Einar K. Einarsson efstur skákmanna með minna en 2200 stig. Björn Torfason bóndi á Melum varð efstur í 2 flokkum, heimamanna og stigalausra skákmanna.

Svanberg Pálsson var efstur barna á grunnuskólaaldri, annar var Nökkvi Sverrisson og þriðja Emma Kamilla Finnbogadóttir.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varð efst kvenna. Hún gaf verðlaunafé sitt í söfnun til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum, sem missti hús sitt í stórbruna í byrjun vikunnar. Aðrir verðlaunahafar gáfu líka í söfnunina.

Heiðursgestur mótsins var grænlenski pilturinn Paulus Napatoq. Hann er 16 ára, hefur verið blindur frá fæðingu og býr í afskekktasta þorpi Grænlands. Hann tefldi 5 skákir á mótinu í Djúpavík og fékk 3,5 vinning.

Á morgun, sunnudag, verður hraðskákmót í Kaffi Norðurfirði, nýju kaffihúsi Árneshrepps sem opnaði á þjóðhátíðardaginn. Mótið hefst kl. 12 og er öllum opið.

Myndin: Helgi Ólafsson var allan tímann uppi á sviði í síldarverksmiðjunni í Djúpavík. Hér teflir hann við danska alþjóðameistarann Espen Lund. Helgi vann.

Minningarmót Páls Gunnarssonar, lokastaða 1: Helgi Ólafsson, 8 vinninga 2: Björn Þorfinnsson, 7 vinninga 3-5: Arnar Gunnarsson, Simon Bekker-Jensen, Henrik Danielsen, 6,5 vinning 6-8: Espen Lund, Guðmundur Kjartansson, Einar K. Einarsson 6 vinninga 9-11: Magnús Gíslason, Hrannar Jónsson, Svanberg Már Pálsson 5,5 vinning 12-20: Róbert Harðarson, Jakob Fang Glud, Grímur Grímsson, Pétur Atli Lárusson, Hilmar Þorsteinsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Birgir Berndsen, Kjartan Guðmundsson, Páll Sigurðsson 5 vinninga 21-26: Eiríkur Björnsson, Sigurður Sverrisson, Sverrir Unnarsson, Ingþór Stefánsson, Björn Torfason, Gunnar Nikulásson 4,5 vinning o.s.frv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband