Mikið fjör á Minningarmóti Páls

SkáksalurinnHelgi Ólafsson og Arnar Gunnarsson eru efstir og jafnir eftir 4 umferðir á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Róbert Harðarson er í 3. sæti, en alls eru keppendur á mótinu hátt í 60 talsins.

Meðal keppenda eru meistarar, bændur, börn og áhugamenn af öllum stigum.

Teflt er í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík, og hefur gömlu mjölgeymslunni verið breytt í glæsilegan skáksal.

Við upphaf mótsins var Guðmundur Þorsteinsson á Finnbogastöðum heiðraður með taflborði, árituðu af Gary Kasparov. Guðmundur sem á mánudaginn missti hús sitt, eignir og innbú í stórbruna er meðal keppenda á mótinu, og hefur staðið sig með prýði.

Mótið heldur áfram á laugardag klukkan 13 og þá verða tefldar 5 umferðir. Sigurvegarinn fær 100 þúsund krónur í sinn hlut og verðlaunagrip úr rekaviði eftir Valgeir Benediktsson í Árnesi.

Samhliða skákmótinu hefur verið sett upp sýning á málverkum Kormáks Bragasonar og þá er til sýnis glertafl unnið af Maríu Þorláksdóttur.

Búast má við æsispennandi keppni á mótinu í Djúpavík í dag, enda eru veitt verðlaun í mörgum flokkum.

Staðan efstu manna, eftir 4 umferðir: 1-2: Helgi Ólafsson og Arnar Gunnarsson, 4 vinninga. 3: Róbert Harðarson, 3,5 vinning 4-11: Simon Bekker-Jens, Jakob Vang Glud, Guðmundur Kjartansson, Espen Lund, Björn Þorfinnsson, Hrannar Jónsson, Pétur Atli Lárusson, Hilmar Þorsteinsson, Grímur Grímsson 3 vinninga 13-15: Birgir Berndsen, Eiríkur Björnsson, Henrik Danielsen, 2,5 vinninga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband