21.6.2008 | 02:17
Mikið fjör á Minningarmóti Páls
Helgi Ólafsson og Arnar Gunnarsson eru efstir og jafnir eftir 4 umferðir á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík. Róbert Harðarson er í 3. sæti, en alls eru keppendur á mótinu hátt í 60 talsins.
Meðal keppenda eru meistarar, bændur, börn og áhugamenn af öllum stigum.
Teflt er í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík, og hefur gömlu mjölgeymslunni verið breytt í glæsilegan skáksal.
Við upphaf mótsins var Guðmundur Þorsteinsson á Finnbogastöðum heiðraður með taflborði, árituðu af Gary Kasparov. Guðmundur sem á mánudaginn missti hús sitt, eignir og innbú í stórbruna er meðal keppenda á mótinu, og hefur staðið sig með prýði.
Mótið heldur áfram á laugardag klukkan 13 og þá verða tefldar 5 umferðir. Sigurvegarinn fær 100 þúsund krónur í sinn hlut og verðlaunagrip úr rekaviði eftir Valgeir Benediktsson í Árnesi.
Samhliða skákmótinu hefur verið sett upp sýning á málverkum Kormáks Bragasonar og þá er til sýnis glertafl unnið af Maríu Þorláksdóttur.
Búast má við æsispennandi keppni á mótinu í Djúpavík í dag, enda eru veitt verðlaun í mörgum flokkum.
Staðan efstu manna, eftir 4 umferðir: 1-2: Helgi Ólafsson og Arnar Gunnarsson, 4 vinninga. 3: Róbert Harðarson, 3,5 vinning 4-11: Simon Bekker-Jens, Jakob Vang Glud, Guðmundur Kjartansson, Espen Lund, Björn Þorfinnsson, Hrannar Jónsson, Pétur Atli Lárusson, Hilmar Þorsteinsson, Grímur Grímsson 3 vinninga 13-15: Birgir Berndsen, Eiríkur Björnsson, Henrik Danielsen, 2,5 vinninga.
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 02:30 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.