22.6.2008 | 00:54
Tvöfaldur sigur Björns á Melum
Björn Torfason bóndi á Melum var eini tvöfaldi sigurvegarinn í Djúpavík. Hann varð efstur í flokki stigalausra skákmanna, sem og í flokki Strandamanna.
Skæðasti keppinautur Björns var Ingólfur Benediktsson í Árnesi, sem varð í 2. sæti í báðum flokkunum.
Aðrir heimamenn á mótinu voru Kristján Albertsson, Róbert Hlífar Ingólfsson, Númi Ingólfsson, Árný Björnsdóttir, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Þorsteinsson, Ásta Þorbjörg Ingólfsdóttir.
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.