22.6.2008 | 00:23
Heiðursgesturinn okkar
Paulus Napatoq kom um langan veg til Djúpavíkur. Hann býr í nyrsta þorpi Austur-Grænlands, þar sem 800 kílómetrar eru í næstu byggð.
Paulus var heiðursgestur á Minningarmóti Páls Gunnarssonar í Djúpavík og mætti til leiks ásamt skólastjóranum sínum, Peter von Staffeldt.
Hann hefur verið blindur frá fæðingu en lærði að tefla í fyrra, þegar liðsmenn Hróksins heimsóttu þorpið hans. Síðan hefur Paulus náð frábærum árangri, sérstaklega eftir að hann fékk sérstakt blindratafl.
Paulus tefldi 5 skákir á mótinu og fékk 3,5 vinning. Hann vann 2, gerði 3 jafntefli og tapaði engri skák!
Þeir Peter og Paulus búa í góðu yfirlæti á Melum, meðan á dvöl þeirra í Árneshreppi stendur.
Í lokaathöfn Minningarmóts Páls Gunnarssonar var Paulus færð vegleg gjöf frá 66° Norður, sem mun örugglega koma sér vel fyrir hann á 73. breiddargráðu. Þá fékk Paulus fallegan bikar, eftir Valgeir Benediktsson í Árnesi.
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.