Skákhátíð í Árneshreppi 19. til 21. júní

Guðmundur í ÁvíkJóhann Hjartarson stórmeistari, stigahæsti meistari íslenskrar skáksögu, verður meðal keppenda á Minningarmóti Guðmundar Jónssonar frá Stóru-Ávík, sem haldið verður í Djúpavík, laugardaginn 20. júní.

Athygli er vakin á því að Minningarmót Guðmundar tekur aðeins einn dag, en að skákhátíðin í Árneshreppi stendur frá föstudegi til sunnudags. Af öðrum keppendum má nefna stórmeistarana Henrik Danielsen og Þröst Þórhallsson, alþjóðameistarana Arnar Gunnarsson og Björn Þorfinnsson, Róbert Harðarson FIDE-meistara og Gunnar Björnsson forseta Skáksambandsins. Vonir standa til að Djúpavíkurmeistarinn 2008, Helgi Ólafsson, verði með, auk þess sem von er á áhugamönnum á öllum aldri og úr öllum áttum.

Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis. Keppendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Hægt er að bóka gistingu í samráði við skipuleggjendur eða á eftirtöldum stöðum:

Hótel Djúpavík, sími 451 4037 Gistihúsið Norðurfirði, sími 554 4089 Gistihúsið Bergistangi, Norðurfirði, sími 4514003  Finnbogastaðaskóli (svefnpokapláss og tjaldstæði), sími 4514012

Dagskráin hefst í Djúpavík föstudagskvöldið 19. júní með setningarathöfn og tvískákarmóti – en það er mjög skemmtilegt listform þar sem tveir eru saman í liði.Laugardaginn 20. júní klukkan 12 hefst aðalviðburður helgarinnar í Djúpavík: Minningarmót Guðmundar Jónssonar í Stóru-Ávík. Mótinu lýkur síðdegis með verðlaunaafhendingu og grilli.Fiskimaðurinn frækniVerðlaun eru sannarlega glæsileg.

Auk 100 þúsund króna verðlaunapotts eru fjöldi góðra vinninga. Þar má nefna skúlptúr eftir Guðjón frá Dröngum, listmun eftir Valgeir í Árnesi, siglingu fyrir tvo norður að Horni, silfurnisti eftir Jóhönnu í Árnesi, gistingu í Norðurfirði, Hótel Djúpavík og sundlaugarhúsinu Krossnesi, landsins besta lambakjöt frá Melum, slæður frá Persíu og Arabíu, hannyrðir Selmu á Steinstúni, málsverð fyrir tvo í Kaffi Norðurfirði,  og bækur frá Forlaginu og Skugga.

Á sunnudeginum klukkan 13 er svo komið að hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði.  Allir eru hjartanlega velkomnir, hvort sem er til að tefla eða sýna sig og sjá aðra. Þátttaka er ókeypis.Skákmeistarinn

Með hátíðinni núna viljum við heiðra minningu Guðmundar Jónssonar í Stóru-Ávík, sem jafnan var hrókur alls fagnaðar á skákþingum einsog öðrum mannmótum.

Við leiðum saman heimamenn og gesti, stráka og stelpur, mjóa og feita, unga og gamla. Allt í samræmi við kjörorð FIDE og Hróksins: Við erum ein fjölskylda.

Sett hefur verið upp Facebook-síðan Skákhátíð í Árneshreppi á Ströndum. Upplýsingar og skráning: Róbert Lagerman, chesslion@hotmail.com, sími 6969658 Hrafn Jökulsson, hrafnjokuls@hotmail.com, sími 4514026.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óttalega þykir mér, gömlum og óbreyttum verkamanni í víngarði Caissu, slæmt að vera bundinn hér heima á Reykhólum alla þessa helgi. Það er orðið heldur langt um liðið frá því að ég kom síðast í Árneshrepp. Ég hefði viljað koma, ekki til að sækja marga vinninga á skákborðinu heldur fyrst og fremst til að sjá aðra, bæði héraðið og fólkið ...

Hlynur Þór Magnússon (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband